Monday, July 12, 2010

Pakka

Jæja loksins byrjuð að pakka!!

Auðvitað er byrjað á því mikilvægasta..Prjónadótinu mínu hehehe

Svo er fullt af dóti í skápnum sem ég hef ekki notað í ár en tími ekki að henda en nú ætla ég að vera sterk og henda öllu. Fáránlegt að láta það taka pláss því að ég tími ekki að henda því og á ekki eftir að nota það minnsta kosti í ár í viðbót..

Við erum með leigusamning til 15 ágúst á næsta ári svo að við komum ekki heim fyrr en þá.

4 comments:

  1. Mér finnst gaman að fylgjast með þér í þessu ferli, finnst æði að þú hafir ákveðið að taka sénsinn og prufa þetta ævintýri.

    Hlakka til að fylgjast með áframhaldinu og þegar þú ert komin út og búin að taka myndir af húsinu og öllu og skella því á síðuna eða á facið. ;D

    ReplyDelete
  2. Takk fyrir það Rakel. Mér er ekkert smá farið að hlakka til og það verða sko settar inn myndir.
    Gaman að einhver nenni að fylgjast með þessu ævintýri. Bara eftir að hafa skoðað www.myken.no og alla linkana þar og þá er ég bókstaflega að tala um alla linkana hehe Þá varð ég ástfangin af staðnum. Og ekki minkaði hrifningin eftir að ég hef talað við eitthvað af fólkinu í gegnum email og fésið. ég held að við eigum eftir að hafa það mjög gott þarna úti..

    ReplyDelete
  3. Þú ert frábær og mér finnst þú mjög hugrökk að gera þetta. Gangi þér bara rosa vel, ég hlakka til að fylgjast með :D

    ReplyDelete